- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Áfanginn Undirbúningur fyrir háskólanám á Norðurlöndum (DANS3UH05) var í boði fyrir nemendur skólans á 3. ári. Í áfanganum er fjallað um nám og námsmöguleika á Norðurlöndum með sérstakri áherslu á Danmörku. Hópurinn í áfanganum núna á vorönn fór til Kaupmannahafnar vikuna 2. – 6. febrúar ásamt tveimur kennurum. Í ferðinni var mikil og skemmtileg dagskrá. Í ferðinni var m.a. farið í Jónshús þar sem hópurinn fékk fyrirlestur frá Ellen Huld sem er í doktorsnámi í Danmörku. Ellen sagði frá náminu sínu og lífinu í Danmörku. Hópurinn fékk líka fræðslufyrirlestra og skoðunarferðir í lýðháskólana Suhr og Johan Borup. Þá fór hópurinn líka á opið hús í Kaupmannahafnarháskóla og Copenhagen Business school (CBS).
Þetta var vel heppnuð námsferð þrátt fyrir fimbulkulda og storm og nemendur voru sér og skólanum sínum til sóma.