Mjög vel heppnuð Berlínarferð

 

Aðfaranótt miðvikudagsins 7. október hélt 27 manna hópur þýskunemenda í Berlínaráfanga sem kenndur er við skólann ásamt kennara áfangans, Björgu Helgu Sigurðardóttur og aðstoðarmanni til Berlínar í náms- og menningarferð. Nemendur höfðu fyrir ferðina lært um sögu og menningu borgarinnar, unnið kynningar um hverfi hennar og þekktustu staði og rifjað upp orðaforða til að geta bjargað sér sem best í heimsborginni.

Hópurinn gisti við Alexanderplatz, í hjarta gömlu Austur-Berlínar. Farið var í bæði göngu- og rútuferð með íslenskum leiðsögumanni sem býr í Berlín auk þess sem kennari og aðstoðarmaður fóru með nemendur í styttri ferðir. Í þessum ferðum voru skoðaðir margir merkir staðir. Má þar nefna Brandenborgarhliðið, Ólympíuleikvanginn, dómkirkjuna, Holocaust- minnismerkið, Potsdamer Platz, East Side Gallery, Treptower-garðinn, Bebelplatz og Humboldt-háskólann við breiðgötuna Unter den Linden. Auk þess var hin sögufræga bygging Reichstag (þinghúsið) heimsótt og Gedenkstätte Berliner Mauer sem er minningarstaður um Berlínarmúrinn og fengu nemendur leiðsögn á báðum þessum stöðum. Einnig heimsóttu nemendur merkan stað að eigin vali og fóru þá á ýmis söfn, svo sem um daglegt líf í gamla Austur-Þýskalandi, mannslíkamann, listasafn og/eða upp í sjónvarpsturninn og skrifuðu skýrslu á þýsku um heimsóknina eftir að heim var komið. Margir notuðu einnig tækifærið og versluðu á Ku‘damm, frægustu verslunargötunni í vesturhluta Berlínar. Síðasta kvöldið fór hópurinn saman út að borða.

Komið var heim síðdegis sunnudaginn 11. október eftir mjög vel heppnaða ferð. Eftir að heim var komið hafa nemendur unnið ýmiss konar verkefni í tengslum við ferðina, s.s. skrifað ferðasögu, frásögn um heimsókn á veitingastað, klippt til og sett texta á myndbönd sem tekin voru í Berlín og undirbúið sig fyrir munnlegt próf þar sem segja á frá einum degi og lýsa mynd sem tekin var í ferðinni. Framkoma nemenda var til fyrirmyndar og voru þeir sjálfum sér og skólanum til sóma.