Mikilvægt vegna námsmatsdaga

 

Námsmatsdagar eru 6. - 15. desember
Mikilvægar upplýsingar sem við biðjum nemendur og forráðamenn að kynna sér: 

  • Mikilvægt er að skoða vel klukkan hvað hvert próf byrjar og í hvaða kennslustofu það er, sjá hér: https://www.kvenno.is/static/files/stofur-nemendur-des-2023.pdf
  • Ef próf er í fleiri en einni byggingu þarf að athuga vel í hvaða byggingu hver bekkur á að mæta. Nemendur sem hafa skráð sig hjá námsráðgjöfum í sérstofu taka prófin sín í stofu M22.
  • Próftöfluna er að finna bæði á Innu og á heimasíðu skólans. Mikilvægt er að kynna sér vel prófareglur og prófafyrirkomulag, sjá hér: https://www.kvenno.is/is/nam-kennsla/namsmat-og-namsframvinda/profareglur.
  • Veikindi á að tilkynna strax að morgni prófdags (hringja á skrifstofu skólans) og staðfesta síðan með læknisvottorði dagsettu samdægurs. Vottorðinu skal skila á skrifstofu skólans rafrænt á kvenno@kvenno.is.
  • Athugið að ef nemandi verður uppvís að því að nota óleyfileg gögn telst nemandi fallinn á prófinu. Yfirhafnir, töskur og annað skal setja fremst í prófstofuna. Pennaveski mega ekki vera á borðum.
  • Öll snjalltæki og/eða heyrnartól eru bönnuð. Slökkt skal á símum eða setja á flugstillingu og þeir skildir eftir hjá yfirsetufólki eða hafðir í tösku eða yfirhöfn. Að loknu prófi skal nemandi yfirgefa yfirgefa bygginguna hljóðlega svo nemendur sem eru ennþá í prófi verði ekki fyrir truflun. Sjúkrapróf verða mánudaginn 18. desember í stofu N2 og hefjast kl. 9:00.
  • Hægt er nálgast ýmis gögn og góð ráð frá náms- og starfsráðgjöfum skólans á heimasíðu skólans og undir flipanum aðstoð í Innu, t.d. skipulagsblöð og góðar aðferðir við tímastjórnun og próftækni.