Námsmatsdagar hefjast á miðvikudag. Við biðjum nemendur að kynna sér mjög vel eftirfarandi atriði varðandi fyrirkomulag þeirra:
Hvenær og hvar?
- Próftöfluna er að finna bæði á Innu og á heimasíðu skólans.
- Staðsetningu og tímasetningu hvers prófs fyrir sig má sjá í þessu skjali. Athugið: Ef próf er í fleiri en einni byggingu þurfa nemendur að athuga vel í hvaða byggingu þeirra bekkur á að vera.
- Nemendur sem eru með lituð blöð og ekki í sérstofu fá tölvupóst með upplýsingum um í hvaða stofu prófið þeirra verður.
Reglur í prófi
- Mikilvægt er að nemendur kynni sér vel prófareglur og prófafyrirkomulag skólans.
- Athugið að ef nemandi verður uppvís að því að nota óleyfileg gögn telst nemandi fallinn á prófinu.
- Yfirhafnir og annað á að skilja eftir fremst í prófstofu. Öll snjalltæki og/eða heyrnartól eru bönnuð. Slökkt skal á símum eða setja á flugstillingu og þeir skildir eftir hjá yfirsetufólki eða hafðir í tösku eða yfirhöfn. Pennaveski skal setja undir borð (mega ekki vera á borðum).
- Nemendur eru beðnir um að yfirgefa bygginguna hljóðlega um leið og þeir ganga út úr prófinu svo nemendur sem eru ennþá í prófi verði ekki fyrir truflun.
Sérstofa
Nemendur sem hafa skráð sig hjá námsráðgjöfum í sérstofu taka prófin sín í stofu M17.
Veikindi
Veikindi á að tilkynna strax að morgni prófdags (hringja á skrifstofu skólans) og staðfesta síðan með læknisvottorði dagsettu samdægurs. Vottorðinu skal skila á skrifstofu skólans rafrænt á kvennaskolinn@kvenno.is.
Sjúkrapróf
Sjúkrapróf verða mánudaginn 19. maí og hefjast kl. 9:00.
Góðar námsvenjur á námsmatsdögum
Hægt er nálgast ýmis gögn og góð ráð frá náms- og starfsráðgjöfum skólans, t.d. skipulagsblöð, góðar aðferðir við tímastjórnun og próftækni hér og undir aðstoð í Innu.