Metfjöldi kennaranema

Kennaranemar í Kvennaskólanum skólaárið 2026-27. Á myndina vantar Axel Pétur Ólafsson.
Kennaranemar í Kvennaskólanum skólaárið 2026-27. Á myndina vantar Axel Pétur Ólafsson.

 

Kvennaskólinn er í samstarfi við menntavísindasvið Háskóla Íslands um vettvangsnám kennaranema. Á hverju ári fáum við til okkar hóp kennaranema sem tekur þátt í skólastarfinu allt skólaárið. Þau sækja vikulega fundi og kynnast fjölbreyttum þáttum í starfsemi skólans. Þau fylgjast með kennslustundum, mæta á kennarafundi, aðstoða við kennslu og fá æfingu í að kenna sjálfir undir handleiðslu leiðsagnarkennara sem eru starfandi kennarar við Kvennaskólann. Þetta er dýrmætt samstarf sem bæði gefur kennaranemum, starfsfólki og nemendum fjölbreytt námsumhverfi og stuðlar um leið að mikilvægri skólaþróun í landinu. Verkefnastjóri kennaranema er Sigríður María Tómasdóttir.

Þetta skólaár eru í Kvennaskólanum þrettán kennaranemar sem er metfjöldi. Þau hafa mjög mikla og  fjölbreytta reynslu úr fyrra námi og atvinnulífi. Auður Magnúsdóttir er hjá Elvu Björt Pálsdóttur efnafræðikennara. Andrea Örvarsdóttir og Davíð Daníelsson eru kennaranemar í sögu hjá Bjarna Ólafssyni. Axel Pétur Ólafsson mun kenna umhverfisfræði hjá Halldóru Jóhannesdóttur. Ágústa Mjöll Gísladóttir og Erla Sigurlaug Sigurðardóttir kenna félagsvísindi hjá Þórði Kristinssyni. Fanney Ósk Einarsdóttir og Þorkell Magnússon eru hjá Ester Bergsteinsdóttur sálfræðikennara. Helga Sóley Vilhjálmsdóttir og Þóra Katrín Gunnarsdóttir eru kennaranemar hjá Sigrúnu Steingrímsdóttur íslenskukennara. Charlotte Lilja Briem er hjá Katarzynu Rabeda og mun kenna íslensku sem annað mál á íslenskubrautinni okkar og þeir Kristján Hafþórsson og Kristján Karl Karlsson eru kennaranemar hjá Valgerði Stellu Kristjánsdóttur félagsvísindakennara.

Við bjóðum þau hjartanlega velkomin í skólasamfélagið okkar og hlökkum til samstarfsins í vetur.