- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Dagana 9.-13. október dvöldu 24 nemendur Kvennaskólans ásamt tveimur frönskukennurum í Parísarborg. Ferðin er hluti af svokölluðum Parísaráfanga sem er í boði fyrir frönskunemendur hér við skólann. Í áfanganum fræðast nemendur um heimsborgina París og vinna ýmis verkefni. Menningarferð til Parísar er hápunktur áfangans sem hefur verið vinsæll valáfangi í á annan áratug. Hópurinn gisti á farfuglaheimili í hjarta borgarinnar, nánar tiltekið í Mýrinni (le Marais) í 4. hverfi.
Margt var gert og víða farið. Má nefna siglingu á Signu að kvöldlagi þar sem Eiffel-turninn skartaði sínu fegursta, skoðunarferðir um Mýrina og Montmartre hverfin og heimsóknir í Louvre, Notre Dame kirkjuna og Sigurbogann. Meðalskrefafjöldi í ferðinni mældist tæplega 87 þúsund á mann og hver og einn gekk 59 kílómetra að meðaltali þessa fimm daga!
Hluti af dagskrá hópsins fólst í því að nemendur fóru saman í smærri hópum í ólíkar áttir og skoðuðu nokkra fyrirfram ákveðna staði sem þau völdu að vinna verkefni um. Þar áttu þau að kynna sér staðhætti og viða að sér efni, taka myndir og myndbönd. Þau áttu líka að taka viðtöl á frönsku við fólk á stöðunum svo töluvert reyndi á frönskukunnáttu þeirra. Efnisöflun gekk vel og nemendur sáu og upplifðu ótalmargt nýtt og spennandi sem þau eru að vinna úr nú eftir heimkomu.
Ferðin gekk mjög vel, gleði og kátína sem og kurteisi og áhugasemi einkenndi hópinn sem var skólanum til sóma í ferðinni. Það var óneitanlega sérstök stemmning í Parísarborg í þetta sinn vegna mótmæla franskra menntskælinga, nemendur Kvennaskólans urðu vel vör við þau og viðbúnað lögreglunnar. Upplifun af borginni varð því enn sterkari fyrir vikið.