Lokaeinkunnir, prófsýning og útskrift

Lokaeinkunnir áfanga verða birtar í Innu fyrir kl. 8:00 miðvikudaginn 20. maí. Sama dag verður prófsýning í N og M milli kl. 9:00 og 10:00. Hér sjáið þið í hvaða stofum námsgreinarnar verða á prófsýningu: https://www.kvenno.is/static/files/profsyning-mai-2026.pdf

Umsjónarkennarar verða með viðtalstíma strax eftir prófsýningu (milli kl. 10:00 og 10:30), sjá hér: https://www.kvenno.is/static/files/vidtalstimi-umsjonarkennara-mai-2026.pdf.

Nemendur sem þurfa að fara í endurtökupróf verða að skrá sig í þau miðvikudaginn 20. maí með því að fylla út viðeigandi form sem verður sett á heimasíðu skólans á prófsýningardag. Endurtökupróf fyrir aðra en útskriftarefni verða haldin í Miðbæjarskólanum (M) dagana 28., 29. maí og 1. júní, kl. 10:00.

  • Við minnum á þjónustu náms- og starfsráðgjafa sem verða á staðnum á prófsýningardaginn.
  • Mikilvægt: Við biðjum nemendur sem ætla ekki að vera áfram í Kvennó í haust að senda tölvupóst sem fyrst til Bjarkar áfangastjóra.
  • Skápar og óskilamunir: Mikilvægt að nemendur tæmi skápana sína á prófsýningardaginn. Í M á að skilja skápinn eftir opinn en varðandi skápa í A þá þarf að skila lykli á skrifstofuna í A. Á prófsýningu verða óskilamunir í glerskápnum fyrir framan M12 og á skrifstofunni í A og hjá Björk og Ásdísi í M.

Útskriftarnemar eiga að mæta á æfingu í Háskólabíó að lokinni prófsýningu. Æfingin hefst stundvíslega kl. 11:00 og klárast um kl. 12:30 ef allt gengur vel. 

Brautskráning stúdenta fer fram föstudaginn 22. maí kl. 14:00. Útskriftarnemar eru beðnir um að mæta í síðasta lagi kl. 13:30. Athöfnin verður í Háskólabíó og mun hún taka u.þ.b. 2 klst. Að athöfn lokinni verður myndataka af hópnum.