- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Lokaeinkunnir áfanga verða birtar í Innu fyrir kl. 8:00 miðvikudaginn 21. maí. Sama dag verður prófsýning í N og M milli kl. 9:00 og 10:00. Hér sjáið þið í hvaða stofum námsgreinarnar verða á prófsýningu: https://www.kvenno.is/static/files/Valafangar/profsyning-21.-mai-2025.pdf.
Umsjónarkennarar verða með viðtalstíma strax eftir prófsýningu, sjá hér: https://www.kvenno.is/static/files/Valafangar/vidtalstimi-umsjonarkennara-21.-mai-2025.pdf.
Nemendur sem þurfa að fara í endurtökupróf verða að skrá sig í þau miðvikudaginn 21. maí með því að fylla út viðeigandi form sem verður sett á heimasíðu skólans á prófsýningardag. Endurtökupróf fyrir aðra en útskriftarefni verða haldin í Miðbæjarskólanum (M) dagana 28., 29. maí og 2. júní, kl. 10:00.