Leikstjóri Sölku Völku í heimsókn

 

Nemendur á 3. ári í Kvennaskólanum hafa verið að lesa fyrstu 2 hluta Sölku Völku eftir Halldór K. Laxness en þessir hlutar bókarinnar kallast Ástin og Dauðinn. Þar hefur sýnt sig að sagan á fullt erindi til framhaldsskólanema og hafa nemendur sýnt að þeir hafa bæði þroska og skilning til þess að fjalla um þetta ágæta verk sem enn á fullt erindi við lesendur.
Að lokinni yfirferð, þar sem alls konar pælingar svifu yfir vötnum, kom  leikarinn og leikstjórinn Björn Thors í heimsókn í Uppsali til að spjalla um söguna við nemendur. Björn hefur sjálfur leikið í fjölda verka eftir Laxness og leikstýrir auk þess leikkonunni Unni Ösp Stefánsdóttur, eiginkonu sinni, þar sem hún er að sýna einleik  sem hún vann upp úr þessum 2 hlutum Sölku Völku. Er einleikurinn fluttur á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Björn ræddi meðal annars sína upplifun af sögunni og nemendur deildu með honum ýmsu sem þeir voru að velta fyrir sér. Var góður rómur gerður að þessari heimsókn.