Langar þig til Þýskalands í sumar?

 

Félag þýzkukennara á Íslandi efnir til samkeppni meðal framhaldsskólanema þriðjudaginn 22. febrúar. Í Kvennó verður keppnin haldin í stofu M16 kl. 10:35 - 12:05. Tvö þyngdarstig verða í keppninni. Kvennaskólinn hefur oft átt verðlaunahafa í keppninni og hvetjum við nemendur til að taka þátt.

Verðlaunahafar á stigi 2 eiga möguleika á að vinna 2 vikna dvöl í Þýskalandi sumarið 2022* með fjölbreyttri dagskrá. Einnig verða veitt bókaverðlaun á báðum stigum.

Þú getur tekið þátt ef …

  • þú ert íslenskur ríkisborgari
  • ef þú ert fædd(ur) á tímabilinu 1997 – 2006
  • ef þú hefur nú þegar lært þýsku í a.m.k. eina önn
  • ef þú hefur ekki verið lengur en 6 vikur samfleytt í þýskumælandi landi og hefur þína þýskukunnáttu úr skólanum
  • ef þú hefur ekki áður hlotið styrk frá Þýskalandi

 

Úr umsögnum nemenda um Þýskalandsdvölina: “Bestu vikur lífs míns!” “Mjög vel skipulögð ferð!” “Þessi ferð var alveg ótrúleg upplifun!”

Nánari upplýsingar veita þýskukennarar.

*með fyrirvara um breytingar vegna aðstæðna.