- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Fyrsta umferð Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði var haldin 5. febrúar í hverjum skóla fyrir sig sem tók þátt. Nemendur þurftu að leysa verkefni en í ár var áhersla lögð á frumulíffræði, líffæra- og lífeðlisfræði dýra, erfðafræði og þróun, atferlisfræði, flokkunarfræði og vistfræði. Alls komust 40 nemendur áfram úr ólíkum skólum. Sjö nemendur úr Kvennaskólanum komust áfram: Ása Dagrún Geirsdóttir 3NÞ, Bríet Aðalbjörg Agnarsdóttir 2NF, Erlingur Snær Kristjánsson 3NB, Freyja Sigríður Ásgeirsdóttir 3ND, Gerður Eva Sigurðardóttir Wiium 3NA, Svala Vigfúsdóttir 3NF og Thomas A. Brugherr 3NB.
Úrslitakeppni Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði verður svo haldin laugardaginn 14. mars í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Fjórum hæstu keppendum verður svo boðið að keppa fyrir Íslands hönd í 37. Ólympíukeppninni í líffræði sem fer fram í Vilinius, Litháen 12.-19. júlí nk.
Almenna landskeppnin í efnafræði fór fram í framhaldsskólum landsins 25. febrúar. Alls tóku þátt 109 nemendur úr níu skólum. 13 efstu keppendum er boðið að taka þátt í úrslitakeppni sem verður haldin í Háskóla Íslands helgina 7.-8. mars. Tveir nemendur úr Kvennaskólanum voru meðal 13 stigahæstu, þær Ása Dagrún Geirsdóttir 3ND og Sara Sólveig Lis 3NF.
Það er dýrmæt reynsla fyrir nemendur að fá að taka þátt í svona keppnum og við viljum þakka kennurum í efna- og líffræði fyrir að halda utan um keppnirnar hér í Kvennó.