Kynningarfundir


Kynningarfundir fyrir foreldra/forráðamenn nýnema verða haldnir mánudaginn 31. ágúst í Uppsölum, húsnæði skólans að Þingholtsstræti 37. Við höldum tvo eins kynningarfundi.

Fyrri fundurinn hefst kl. 17:30. Á hann eru boðaðir foreldrar/forráðamenn nemenda í eftirfarandi bekkjum: 1ÍB/2ÍB, 1NA, 1NB, 1FA, 1FB, 1SB.

Seinni fundurinn hefst kl. 19:00. Á hann eru boðaðir foreldrar/forráðamenn nemenda í eftirfarandi bekkjum: 1FF, 1FÞ, 1NC, 1NF, 1NÞ.

Dagskrá er eftirfarandi:

  • Ávarp skólameistara
  • Kynning á stoðþjónustu skólans
  • Kynning á lýðheilsu- og forvarnarstarfi skólans
  • 4 Kynning á jafnréttisstarfi skólans
  • 5 Kynning á félagslífi nemenda
  • 6 Umsjónarkennarar fylgja foreldrum/forráðamönnum í stofur og kynna skipulag náms og aðra þætti í starfi skólans


Gera má ráð fyrir að kynningar í Uppsölum og kynning umsjónarkennara í stofum í framhaldinu taki alls um 1,5 klst.

Verið hjartanlega velkomin