Kvennó áfram í Gettu betur

Fyrsta umferð Gettur betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, fór fram í gærkvöld. Þrjár viðureignir voru háðar og fóru leikar þannig að Tækniskólinn sigraði Verkmenntaskóla Austurlands 29-11, Menntaskólinn á Akureyri vann Menntaskóla í tónlist 23-6 og Kvennaskólinn í Reykjavík lagði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra að velli 24-11.

Lið Kvennó skipa þau Áróra Friðriksdóttir 3. NF, Ari Borg Helgason 3. NÞ og Hildur Sigurbergsdóttir 3 FS.