Kvennaskólinn sigraði MR í undanúrslitum

Lið Kvennaskólans þegar úrslitin voru ráðin
Lið Kvennaskólans þegar úrslitin voru ráðin

Síðastliðið föstudagskvöldið vann lið Kvennaskólans sigur á liði Menntaskólans í Reykjavík í undanúrslitum Gettu betur. Keppnin var æsispennandi allan tímann og réðust úrslitin ekki fyrr en í síðustu spurningu. Kvennó leiddi með tveimur stigum fyrir lokaspurninguna, svokallaða þríþraut þar sem hægt er að fá þrjú eða ekkert stig úr pottinum. MR náði réttinum en svarið var rangt. Kvennó var hins vegar með rétt svarið þar og voru lokatölur keppninnar 29 - 24. Lið Kvennaskólans mun því mæta liði Verzlunarskólans í úrslitunum næstkomandi föstudag. Liðsmenn Kvennaskólans eru Áróra Friðriksdóttir, Ari Borg Helgason og Hildur Sigurbergsdóttir. Innilegar hamingjuóskir - við hlökkum mikið til 19. mars.