Jafnlaunavottun

Það eru óneitanlega tímamót í Kvennaskólanum í Reykjavík í dag. Nú hefur skólinn öðlast hina lögbundnu jafnlaunavottun. Þetta hefur verið nokkuð langt og strangt ferli sem hefur kennt okkur margt og því er það sannarlega fagnaðarefni að vottunin sé komin í hús. Á myndinni afhendir Emil Karlsson frá Vottun ehf. Hjalta Jóni skólameistara innrammað skírteinið.