- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Er hægt að læra málfræði í IKEA? Já, svo sannarlega!
Í síðustu viku fóru nemendur á íslenskubraut í IKEA ásamt kennara sínum og kennaranema. Nemendur eru þessa dagana að læra um hús, heimili og húsgögn og því var tilvalið að fara á vettvang og æfa orðaforðann! Þau leystu ýmis verkefni, lærðu ný orð og kynntust því hvernig samsett orð verða til. Hópurinn fór saman í strætó alla leið úr miðborginni og stoppaði dágóða stund í versluninni. Við viljum þakka forsvarsfólki Ikea fyrir einstaklega góðar móttökur og gestrisni.