- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Nú er innritun nýnema í Kvennaskólann lokið og hafa verið innritaðir 243 nemendur á 1. ár, 100 nemendur á félagsvísindabraut, 125 nemendur á náttúruvísindabraut, 15 nemendur á íslenskubraut og 3 nemendur á starfsbraut. Samtals sóttu 1107 nýnemar um nám við skólann í fyrsta til þriðja vali. Þar af 412 í 1. vali, 510 í 2. vali og 145 í 3. vali. á félags- og náttúruvísindabraut skólans. Í haust er gert ráð fyrir að 722 nemendur verði í skólanum sem er mesti fjöldi frá upphafi sögu skólans, 18 nemendur á starfsbraut, 30 á íslenskubraut, 264 á félagsvísindabraut og 410 á náttúruvísindabraut.
Við úrvinnslu umsókna er unnið eftir verklagsreglum um inntöku nýnema. Umsækjendur um nám í Kvennaskólanum sem ekki fengu samþykkta skólavist geta skráð sig á biðlista hér og haft verður samband við viðkomandi í ágúst ef pláss losnar og hægt er að veita skólavist.
Nýnemum verður sendur tölvupóstur með helstu upplýsingum en einnig má finna upplýsingar um upphaf næsta skólaárs hér.
Hér eru slóðir á samfélagsmiðla skólans: Instagram og Facebook.
Bestu óskir um gleðilegt sumar.