Innritun lokið

Nú er innritun nýnema í Kvennaskólann lokið og hafa verið innritaðir 248 nemendur á 1. ár, 75 nemendur á félagsvísindabraut, 151 nemendur á náttúruvísindabraut, 17 nemendur á íslenskubraut og 5 nemendur á starfsbraut. Samtals sóttu 957 nemendur um skólavist á félags- og náttúruvísindabraut, þ.e. 352 í 1. vali, 463 í 2. vali og 142 í 3. vali.

Við úrvinnslu umsókna er unnið eftir verklagsreglum um inntöku nýnema. Umsækjendur um nám í Kvennaskólanum sem ekki fengu samþykkta skólavist geta skráð sig á biðlista hér og haft verður samband við viðkomandi í ágúst ef pláss losnar og hægt er að veita skólavist.

Nýnemum verður sendur tölvupóstur með helstu upplýsingum en einnig má finna upplýsingar um upphaf næsta skólaárs hér.

Hér eru slóðir á samfélagsmiðla skólans: Instagram og Facebook.

Bestu óskir um gleðilegt sumar.