Innritun lokið - upplýsingar fyrir nýnema

Nú er innritun í Kvennaskólann lokið. Í ár voru 204 nemendur innritaðir á fyrsta ár en alls bárust 641 umsóknir. 

Búið er að senda bréf til nýnema, sem við bjóðum hjartanlega velkomin í skólann.

Nýnemar í 1. bekk eiga að mæta á skólasetningu miðvikudaginn 18. ágúst kl. 9:00. Skólasetningin verður í Uppsölum, Þingholtsstræti 37.

Hægt verður að sjá stundaskrá og námsgagnalista í Innu eftir miðjan ágúst. Inna er upplýsinga- og námskerfi skólans sem heldur utan um alla þætti náms hjá nemendum, m.a. einkunnir, mætingu, námsferil, námsáætlanir og námsgagnalista. Nota þarf Íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn á Innu. Skráðir aðstandendur nemenda yngri en 18 ára hafa aðgang að Innu með sínum rafrænu skilríkjum. 

Greiðsluseðill fyrir innritunargjöld haustannar hefur verið stofnaður og er sýnilegur á island.is og í heimabanka forráðamanna. Gjalddagi er 1. júlí en eindagi 15. júli. 

Við hvetjum nýnema og forráðamenn til að kynna sér vel upplýsingar um námið, skólareglur og þjónustu skólans á heimasíðunni. Einnig er gott að lesa svör við algengum spurningum sem brenna oft á nýnemum, s.s. hvað hægt er að fá metið til eininga, hvernig fyrirkomulag er á skólaíþróttum og hvernig námsaðstoð er í boði. Nánar verður fjallað um þessi atriði í áfanganum Nýnemafræðsla sem allir nemendur fara í á fyrstu önninni sinni í skólanum.   

Við hvetjum líka nýnema og forráðamenn þeirra til að fylgja okkur á samfélagsmiðlunum: https://www.facebook.com/kvennaskolinn og https://www.instagram.com/kvennaskolinnreykjavik/

Skólinn sendir nemendum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur með óskum um gott samstarf á komandi árum. 
Hlökkum til að sjá ykkur í haust.