Hera Sjöfn sigurvegari Rymju

Söngkeppnin Rymja var haldin í Gamla bíó síðastliðinn miðvikudag. Mikil og skemmtileg stemning var í salnum enda keppnin glæsileg að vanda, frábærir flytjendur og lífleg skemmtiatriði.

Sigurvegari kvöldsins var Hera Sjöfn Atladóttir sem flutti lagið The Winner Takes It All með glæsibrag. Hún verður því fulltrúi Kvennaskólans í Söngkeppni framhaldsskólanna sem haldin verður laugardaginn 11. apríl. Aðalheiður Helga Kristjánsdóttir var í öðru sæti í keppninni og dúettinn Margrét Gísladóttir og Nicolina Violy Schulz varð í þriðja sæti.

Við þökkum skemmtinefnd fyrir frábæran viðburð og óskum Heru Sjöfn hjartanlega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með henni í Söngkeppni framhaldsskólanna.