Hefur þú áhuga á stærðfræði?

 

Við vekjum athygli nemenda á verkefninu Stelpur diffra sem eru stærðfræðinámsbúðir fyrir áhugasamar stelpur og kynsegin framhaldsskólanemendur á aldrinum 16-18 ára. Í vikulöngu prógrammi eru þemadagar þar sem farið verður yfir þær greinar sem falla undir Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna en einnig verður alls konar öðruvísi skemmtileg stærðfræði skoðuð. Samhliða er unnið að sjálfstyrkingu í gegnum jafnréttisfræðslu og með því að skoða mikilvægi (og ósýnileika) stærðfræðikvenna í gegnum söguna.

​Námsbúðirnar verða haldnar 8.-12. ágúst í húsakynnum Háskóla Íslands. Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti í alla tíma og er þátttökugjaldið 3.000 kr, en engum verður vísað frá sökum fjárskorts. Miðað er við að þátttakendur hafi lokið að minnsta kosti fyrsta árinu í framhaldsskóla, eða sambærilegum áföngum og eru kenndir á fyrsta ári. Vinsamlegast athugið að ætlast er til að þátttakendur mæti í alla tíma. Ekki er búið að birta nákvæma dagskrá en í fyrra var dagskráin á milli 9-15. Um er að ræða ýmsa skemmtilega atburði,  kennslutíma, vinnusmiðjur og fyrirlestra.

Endilega kynnið ykkur verkefnið nánar á vefsíðunni https://www.stelpurdiffra.is/