- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Á hverju ári efnir Félag þýskukennara til stuttmyndakeppni á meðal þýskunema í framhaldsskólum á öllu landinu. Alls bárust 15 myndir í keppnina að þessu sinni og hrepptu nemendur úr Kvennaskólanum 2. sætið fyrir mynd sína Der Koffer – eða Taskan. Nemendurnir sem standa að myndinni eru Davíð Þór Bjarnason, Eiður Jónsson, Elín Þóra Jóhannesdóttir, Hilmar Atli Birkisson, Hulda Rakel Jónsdóttir, Jónas Thor Þórhallsson og Sóley Magnúsdóttir en þau eru öll í 1. FÞ. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar þau tóku á móti viðurkenningu fyrir árangurinn. Við í Kvennó óskum þeim innilega til hamingju.