Góðir gestir í heimsókn

 

Á dögunum  komu góðir gestir í heimsókn í lögfræðitíma. Þar voru á ferðinni Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og tveir fyrrum Kvenskælingar sem nú eru laganemar, þau Ingigerður B. Írisar og Ágústsdóttir og Guðmundur Skarphéðinsson. Miklar umræður sköpuðust meðal þeirra og áhugasamra nemenda í hópnum sem voru sammála um að heimsóknin hefði bæði verið fróðleg og skemmtileg. Takk kærlega fyrir komuna. Myndin af hópnum fangar stemmninguna vel á þessum skrýtnu tímum. Við sjáum brosin í augunum þrátt fyrir grímurnar!