Góð frammistaða í Gettu betur

 

Síðastliðið föstudagskvöld mætti Gettu betur liðið okkar liði Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Kvennaskólans skipaði Boyd Clive Aynscomb Stephen, Salka Snæbrá Hrannarsdóttir og Hafsteinn Breki Gunnarsson.

Keppnin var sérlega jöfn og skemmtileg. Eftir hraðaspurningar voru liðin hnífjöfn og staðan 15-15. Að loknum bjölluspurningunum munaði svo aðeins einu stigi á liðunum og allt var í járnum. Það var svo í vísbendingaspurningunum sem staðan breyttist því MH tókst að svara þeim rétt í annarri vísbendingu í báðum spurningunum. Fyrir það fengu MH-ingar fjögur stig. Hvorugu liðinu tóst að svara þríþrautinni rétt og því lauk keppninni með 28-23 sigri MH.

Við viljum þakka öllum sem tóku þátt í þessu ævintýri með spurningaliðinu okkar, sérstaklega liðstjórum og þjálfurum liðsins. Þetta voru skemmtilegar viðureignir og við erum virkilega stolt af unga fólkinu okkar.