Glæsilegur sigur í MORFÍs

Lið Kvennaskólans eftir átta liða úrslitin
Lið Kvennaskólans eftir átta liða úrslitin

Lið Kvennaskólans vann góðan sigur í gærkvöldi þegar það sigraði lið Menntaskólans við Sund í átta liða úrslitum MORFÍs. Lið Kvennó skipaði Einar Páll (liðstjóri), Inga Jódís (frummælandi), Berghildur Björk (meðmælandi), Rakel Sif (stuðningsmaður) og Aron Callan og Tinna Sóley (bestu varamenn landsins). Stigamunur milli liða var 51 stig en við viljum samt meina að Kvennó hafið rústað keppninni...og það á útivelli!  Við óskum liði Kvennaskólans og öllum Kvenskælingum til hamingju með sigurinn. Næst eru það undanúrslitin!