Glæsilegur árangur í Þýskuþraut

Frá vinstri: Charlotta Karen, Berta María, Þura Bryndís, Karen, Erna Magnea og Lilja Dís.
Frá vinstri: Charlotta Karen, Berta María, Þura Bryndís, Karen, Erna Magnea og Lilja Dís.

Nemendur Kvennaskólans stóðu sig með mikilli prýði í hinni árlegu Þýskuþraut sem nú var haldin í 37. sinn. Félag þýskukennara stendur fyrir keppninni í samstarfi við þýska sendiráðið og Goethe Institut. Alls tóku 150 nemendur frá 9 framhaldsskólum þátt að þessu sinni. Á stigi 1 tóku 113 nemendur þátt og voru 4 af 10 efstu þátttakendum nemendur í Kvennaskólanum. Karen Dagsdóttir 2.ND varð í 2. sæti, Lilja Dís Hjörleifsdóttir 2.ND í 6. sæti, Erna Magnea Albertsdóttir úr 2.ND í 8. sæti og Charlotta Karen Björnsdóttir 2.NB í 10. sæti. Á stigi 2 sem er fyrir lengra komna tóku 37 nemendur þátt. Þar átti Kvennaskólinn tvo fulltrúa af þeim 5 efstu því Þura Bryndís Bragadóttir 2.FÞ varð í 4. sæti og Berta María Þorkelsdóttir einnig úr 2.FÞ í 5. sæti. Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju með árangurinn.

Meðfylgjandi mynd var tekin við verðlaunaafhendinguna sem fram fór föstudaginn 17. apríl síðastliðinn.