Frumsýning í kvöld

Fúría frumsýnir í Gamla bíó í kvöld söngleikinn 10 Ástæður sem byggður er á kvikmyndinni 10 Things I Hate about You sem sló í gegn þegar hún kom út árið 1999. Kvikmyndin byggir á leikriti Shakespeare The Taming of the Screw eða Skassið tamið. 

Söngleikurinn fjallar um Stratford-systurnar Kat og Bíönku sem eru gjörólíkar. Leikstjóri sýningarinnar er Þórey Sigþórsdóttir, danshöfundur er Lea Alexandra Gunnarsdóttir og tónlistarhöfundurinn er Kristína Jóhannsdóttir. 

Við hvetjum öll til að mæta á þessa frábæru sýningu sem rúmlega 100 nemendur skólans taka þátt í.  Miðasala er á tix.is

Sýningardagar eru: 

  • 19. mars - frumsýning (uppselt) 
  • 23. mars kl. 20:00 
  • 24. mars kl. 20:00 
  • 25. mars kl. 20:00
  • 29. mars kl. 16:00 og 20:00 

 

Hér má sjá myndir af æfingum hópsins í Gamla bíó: