- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Nemendur í 3FF sem læra kynjafræði hjá Þórði Kristinssyni mættu á Málþing kynjafræðinema í framhaldsskólum. Málþingið var haldið í Háskóla Íslands í síðustu viku. Dr. Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði opnaði viðburðinn og Kristín Blöndal Ragnarsdóttir var fundarstjóri. Boðið var upp á þrjú erindi á málþinginu. Eygló Árnadóttir ræddi um MeToo bylgju framhaldsskólanema og kraft mótmæla. Arnar Pálsson fjallaði um líffræðileg sjónarhorn í tengslum við breytileika og fjölda kynja og loks sagði Ágústa Björg Kettler Kristjánsdóttir frá rannsókn sinni um kynlífsmenningu framhaldsskólanema. Svo skemmtilega vill til að sú síðastnefnda er einmitt kennari í Kvennaskólanum. Við viljum þakka skipuleggjendum fyrir frábært framtak. Þetta var virkilega fróðlegt og mjög jákvætt að skólar eigi í svona samstarfi.