- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Ýmislegt var um að vera í síðustu viku. Á fimmtudeginum var Magnús Jóhann Hjartarson með fræðslufyrirlestur fyrir nemendur á 1. ári sem fjallaði meðal annars um að finna tilgang, byggja upp sjálfstraust og þrautseigju og takast á við mótlæti. Fyrirlesturinn var í boði foreldrafélagsins og þökkum við foreldrafélaginu kærlega fyrir og Magnúsi Jóhanni fyrir komuna. Á föstudeginum komu nemendur á 2. ári saman í söngsal. Söngsalurinn var meðal annars tengdur textum frá bókmenntatímabilum sem til umfjöllunar eru í íslenskuáfanga á 2. ári. Einnig voru sungin nokkur lög sem hópurinn mun syngja á peysufatadaginn og ýmsir góðir slagarar. Nemendur tóku vel undir en Margrét Helga Hjartardóttir, frönskukennari, stýrði söngsalnum og Sunna Karen Einarsdóttir lék undir á flygilinn.