- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Dagana 15. og 16. maí komu nemendur af íslenskubrautum Kvennaskólans og Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og nokkrir nemendur af öðrum brautum Kvennaskólans saman í Kvennó og tóku þátt í fræðandi og skemmtilegri dagskrá með yfirskriftinni Byggjum brýr. Um er að ræða verkefni styrkt var af Þróunarsjóði innflytjendamála sem Katarzyna Rabeda, deildarstjóri íslenskubrautar, stýrði og vann í samstarfi við kennara í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ og fleiri aðila.
Fyrri daginn fræddi Ína Björg Árnadóttir, náms- og starfsráðgjafi í Kvennaskólanum, nemendur um íslenska framhaldsskólakerfið og Chanel Björk Sturludóttir fjallaði um fjölmenningu og fordóma og nemendur unnu skemmtileg verkefni í tengslum við það.
Síðari daginn komu brúarsmiðir frá Reykjavíkurborg og Miðju máls og læsis í heimsókn. Þeir kynntu þjónustu sína og sögðu frá upplifun sinni af því að flytja sjálf til Íslands. Samfélagslögreglan kom svo í heimsókn og sagði frá störfum sínum og átti gott samtal við nemendur sem skemmtu sér meðal annars við að prófa ýmsan búnað lögreglunnar. Ásdís Eckhardt, skólahjúkrunarfræðingur, fjallaði síðan um ábyrgð á eigin heilsu og aðgang að þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Að því loknu nutu nemendur veðurblíðunnar í skemmtilegum leikjum sem meðal annars var stýrt af fulltrúum Keðjunnar, nemendafélags Kvennaskólans. Dagskránni lauk síðan með grilli.
Frábær dagskrá og með henni tókst svo sannarlega að byggja margvíslegar brýr!