Rafræn lokapróf og lesaðstaða fyrir nemendur

Það verður fjarnám út önnina en kennarar geta boðið einstaka bekkjum í staðkennslu- og/eða stoðtíma. Síðasti kennsludagur haustannar er 2. desember. Nánari upplýsingar eru í bréfi skólameistara til nemenda frá 16. nóvember síðastliðnum. 

Öll lokapróf verða rafræn. Nemendur fá nákvæmar upplýsingar um tímasetningu prófa á Innu en einnig má finna yfirlit hér

Nú mega nemendur nýta skólahúsnæðið ef þeir þurfa vinnuaðstöðu:

  • Hópar í verkefnavinnu mega hittast í Miðbæjarskóla en þurfa að skrá sig fyrirfram með því að senda tölvupóst á bjorkth@kvenno.is
  • Nemendur sem þurfa næði eru velkomnir á bókasafn skólans en þurfa að skrá sig fyrirfram með því að senda tölvupóst á svanhildur@kvenno.is

Náms- og starfsráðgjafar skólans eru til viðtals, bæði i síma og í skólanum, t.d. ef nemendur þurfa aðstoð við skipulag, tímastjórnun eða próftækni. Tímapantanir eru á Innu. Þeir eru einnig í sambandi við nemendur sem hafa tilkynnt sérúrræði til skólans. Þá minnum við líka á sálfræðing skólans, Svein Gunnar Hálfdánarson. Tímapantanir eru á Innu en einnig má senda tölvupóst á sveinngh@kvenno.is