- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Eplavika hófst í Kvennaskólanum í dag. Það er magnað að eiga hefð sem er orðin 105 ára gömul. Fyrsta eplakvöldið var haldið árið 1921 og fyrstu árin var það hugsað fyrir nemendur sem ekki komust heim um jólin og voru á heimavist skólans. Árið 1979 var dagurinn færður fram í nóvember og þá fóru fulltrúar nemendafélagsins að færa nemendum epli fyrir hádegi, oft í hátíðlegum búningum og kenndu nemendum söguna af deginum í leiðinni. Eftir hádegi var síðan haldin skemmtidagskrá í skólanum og loks ball um kvöldið. Fljótlega eftir þetta fóru bekkir að fara saman út að borða og bjóða umsjónarkennara sínum með. Þessar hefðir og ýmsar fleiri hafa haldið sér í gegnum árin. Til dæmis hafa nemendur undanfarna áratugi valið eplalag ársins og rauðasta Kvenskælinginn hvað fatnað varðar. Gleðilega eplaviku kæru Kvenskælingar!
