Andlát Valgarðs Más Jakobssonar fyrrverandi skólameistara og kennara

Valgarð Már Jakobsson, kær vinur og samstarfsfélagi, lést 31. janúar síðastliðinn. Valgarð hafði ákveðið að snúa sér að kennslu í stærðfræði sem átti hug hans. Við í Kvennaskólanum vorum afar glöð að fá Valgarð til starfa á síðasta ári og því var það mikill missir þegar hann þurfti að hverfa frá vegna erfiðra veikinda. Við í Kvennaskólanum vottum fjölskyldu og vinum Valgarðs okkar innilegustu samúð. Minningin lifir um góðan dreng.