Brautskráning stúdenta

Dúx Kvennaskólans 2025, Grímur Gunnhildarson Einarsson, tekur við viðurkenningu frá Kolfinnu Jóhanne…
Dúx Kvennaskólans 2025, Grímur Gunnhildarson Einarsson, tekur við viðurkenningu frá Kolfinnu Jóhannesdóttur.

 

Mikil gleði ríkti í Háskólabíó síðastliðinn föstudag þegar 209 nýstúdentar voru brautskráðir við hátíðlega athöfn. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari stýrði athöfninni og nýstúdentar sáu um öll þrjú tónlistaratriðin. Aþena Rós Sigurjónsdóttir spilaði einleik á píanó. Þá spiluðu Iðunn Gunnsteinsdóttir (píanó) Dagný Ósk Stefánsdóttir (þverflauta) og Esja Sveinbjörnsdóttir (klarinett) saman og loks spilaði hljómsveitin 5k fyrir gesti. Hljómsveitina skipa Freydís Klara Halldórsdóttir (söngur), Logi Hjörvarsson (trommur), Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir (hljómborð), Anna Birna Ingadóttir (rafmagnsgítar) og Leela Lynn Arni Stefánsdóttir (bassi).

Skólameistari flutti ávarp þar sem hún minnti gesti á framlag menntunar til umbreytinga. “Við lifum á tímum tæknibyltinga, gervigreindar og margvíslegra framfara á sviði vísinda, við lifum einnig á tímum hnattrænna áskorana, óvissu og það eru stríð út í heimi. Framlag okkar til umbreytinga í átt að betri framtíð byggist á fjölþættri hæfni sem inniber þekkingu og færni sem við höfum aflað okkur og þau gildi og viðhorf sem við stöndum fyrir og hafa áhrif á ákvarðanir okkar.”

Ávarp nýstúdents flutti Logi Hjörvarsson, fráfarandi forseti Keðjunnar sem er nemendafélag Kvennaskólans. Heiðursávarp flutti Kristín Marín Siggeirsdóttir, líffræðikennari, sem lætur af störfum í sumar eftir að hafa starfað í 40 ár sem framhaldsskólakennari, þar af 38 ár við Kvennaskólann.

Ásdís Arnalds, aðstoðarskólameistari beindi orðum sínum til nýstúdenta og sagðist vona að “góð samskipti og góð samvinna sé veganesti sem þið hafið fengið í Kvennó og ræktið áfram. Það er sennilega fátt mikilvægara í heimi fjölmenningar, gervigreindar, hraðrar þróunar og margvíslegra átaka í heiminum en einmitt þessir þættir, góð samskipti og góð samvinna.”

Hefð er fyrir því að veita viðurkenningar fyrir námsárangur. Við sem störfum í skólakerfinu vitum hins vegar að einkunnir á blaði geta aldrei útskýrt alla þá sigra sem margir nemendur í hópnum hafa sannarlega unnið á skólagöngu sinni. Persónulegu sigrarnir eru margir og við fögnum þeim innilega með hverju og einu þeirra.

  • Dúx skólans var Grímur Gunnhildarson Einarsson með einkunnina 9,69. Hann hlaut að launum verðlaun úr Minningarsjóði frú Þóru Melsteð og eins var hann verðlaunaður fyrir glæsilegan árangur í félagsfræði. Semidúx skólans var Iðunn Gunnsteinsdóttir með einkunnina 9,64 en hún hlaut einnig verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði.
  • Jakob Felix Pálsson Little hlaut Stúdentspennann fyrir besta lokaverkefni skólaársins úr verðlaunasjóði dr. Guðrúnar P. Helgadóttur.
  • Eyrún Una Arnarsdóttir fékk Menntaverðlaun Háskóla Íslands sem eru veitt nemanda sem hefur sýnt framúrskarandi árangur á stúdentsprófi auk þess að hafa náð eftirtektarverðum árangri á sviði lista eða íþrótta eða átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans.
  • Ólafur Þór Helgason fékk verðlaun Háskólans í Reykjavík sem eru veitt nemanda sem sannað hefur getu sína í raungreinum bæði með vali á krefjandi 3ja þreps námskeiðum og með framúrskarandi árangri. Ólafur Þór lauk 105 einingum í raungreinum og stærðfræði á námsferlinum með ágætiseinkunn í þeim öllum
  • Aðrar viðurkenningar fyrir afburðagóðan námsárangur fengu Karitas Líf Ríkharðsdóttir, Sólveig Þórmundsdóttir, Hálfdán Aron Hilmarsson, Austéja Rekeltaité, Hekla Kristrún Mist Arnarsdóttir, Kristbjörg María Kjartansdóttir, Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir, Eva María Tómasdóttir, Hilmar Andri Lárusson, Andrea Diljá Jóhannesdóttir Bachmann, Katrín Jana Guðbjörnsdóttir,
  • Viðurkenningu fyrir þátttöku í stjórn nemendafélagsins Keðjunnar fengu Logi Hjörvarsson, Daníela Hjördís Magnúsdóttir, Marta Björg Björnsdóttir, Eva Harðardóttir, Eyrún Una Arnarsdóttir, Óttar Örn Bergmann, Áskell Einar Pálmason og Karólína Huld Lárusdóttir.

Við óskum öllum nýstúdentunum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með áfangann.