Brautskráning 22. maí

Mikil gleði ríkti í Háskólabíó síðastliðinn föstudag þegar 207 nemendur voru brautskráðir við hátíðlega athöfn. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari stýrði athöfninni og nemendur sáu umfjölbreytt tónlistaratriði. Hildur Luo Káradóttir lék verkið Tarantelle eftir Johann Kaspar Mertz á gítar, Hera Sjöfn Atladóttir söng lagið Slipping through my fingers með frumsömdum íslenskum texta, Ellý Hákonardóttir flutti frumsamið lag og Ellý flutti einnig ásamt Elvari Hrafni Egilssyni lagið American Pie með frumsömdum texta sem fjallaði um Kvennaskólann. Í lok athafnar léku Francis Matthew De Luna og Markús Máni Guðnason undir fjöldasöng þegar nemendur og gestir sungu lagið Ég er kominn heim.

Kolfinna skólameistari ávarpaði nemendur og fjallaði meðal annars um hlutverk menntunar og framtíðina. „Hlutverk menntunar er að undirbúa ykkur fyrir framtíðina. Framtíð sem getur verið flókið að skilja þar sem heimurinn er stöðugt að breytast. Breytingum fylgja ný tækifæri og möguleikar og valkostir eru óþrjótandi í þeim heimi sem við lifum í. Framtíðin felur einnig í sér ýmsar áskoranir. Við lifum á tímum hnattrænna átaka sem vekur okkur til umhugsunar um hlutverk menntunar í að stuðla að friðsamari heimi. Áskoranir á sviði sjálfbærni og loftslagsbreytinga og áframhaldandi þróun margvíslegra vísinda og tækni, til dæmis tilkoma gervigreindar, halda áfram að kalla á nýja hæfni í störfum. Fólksflutningar milli landa hafa aukist. Ástæður geta til dæmis verið leit að nýjum atvinnutækifærum. Þá flytur fólk til dæmis einnig vegna náms. Því miður geta ástæður einnig verið flótti frá stríði og aðrar óviðunandi aðstæður. Menntakerfið hefur hlutverki að gegna þegar kemur að inngildingu fólks í samfélög, samheldni og virðingu fyrir fjölbreytileika.“ Í lokin óskaði Kolfinna nemendum þess að áherslur í menntun og gildi Kvennaskólans, umhyggja, ábyrgð og fjölbreytileiki, yrðu þeim gott veganesti út í lífið.

Ásdís Arnalds aðstoðarskólameistari beindi orðum sínum til útskriftarnemenda og hvatti þá til að líta jákvæðum augum á það sem þeir myndu taka sér fyrir hendur. Ásdís ræddi líka að kærleikurinn væri sterkasta aflið í heiminum og að hver og ein manneskja væri þar í lykilhlutverki.

Ávarp nýstúdents flutti Þórhildur Lilja Hafsteinsdóttir, fráfarandi forseti Keðjunnar sem er nemendafélag Kvennaskólans.

Hefð er fyrir því að veita viðurkenningar fyrir námsárangur. Við sem störfum í skólakerfinu vitum hins vegar að einkunnir á blaði geta aldrei útskýrt alla þá sigra sem margir nemendur í hópnum hafa sannarlega unnið á skólagöngu sinni. Persónulegu sigrarnir eru margir og við fögnum þeim innilega með hverju og einu þeirra.

  • Dúx skólans var Heiðrún Vala Hilmarsdóttir með einkunnina 9,9. Hún hlaut að launum verðlaun úr Minningarsjóði frú Þóru Melsteð. Heiðrún Vala hlaut einnig viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði. Þá hlaut hún einnig menntaverðlaun Háskóla Íslands sem veitt eru nemanda sem hefur sýnt framúrskarandi árangur á stúdentsprófi auk þess að hafa náð eftirtektarverðum árangri á sviði lista eða íþrótta eða átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans. Heiðrún Vala hefur verið í fararbroddi í mannréttindamálum og heimsborgaravitund sem er í anda gilda skólans sem UNESCO-skóla.
  • Semidúx skólans var Ása Dagrún Geirsdóttir með einkunnina 9,85. Hún hlaut viðurkenningu fyrir einstakan dugnað og metnað í jarðfræði, verðlaun frá Efnafræðifélagi Íslands fyrir frábæran árangur í efnafræði, verðlaun Íslenska stærðfræðifélagsins fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði auk þess sem hún hlaut stúdentspennann fyrir besta lokaverkefni skólans. Ása Dagrún hlaut einnig verðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi en verðlaun eru veitt nemanda sem sannað hefur getu sína í raungreinum með framúrskarandi árangri og vali á krefjandi áföngum á 3. þrepi.
  • Skólinn útskrifaði í fyrsta skipti nemendur af íslenskubraut og fengu tveir nemendur viðurkenningu. Maya Aljoumani Osman fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur og Amina Safdari fyrir dugnað, seiglu og miklar framfarir.
  • Útskriftarnemum í stjórn Keðjunnar var veitt viðurkenning fyrir störf í þágu nemendafélagsins, þeim Þórhildi Lilju Hafsteinsdóttur, Eldari Hrafni Boland, Emelíu Birtu Birkisdóttur, Rögnu Hlín Guðmundsdóttur, Ragnhildi Elvu Kjartansdóttur, Söru Rafnsdóttur og Steindóri Árna Stefánssyni.
  • Aðrar viðurkenningar fyrir afburðagóðan námsárangur fengu Sólrún Elsa Steinarsdóttir, Nína Rakel Svavarsdóttir, Sara Sólveig Lís, Erlingur Snær Kristjánsson, Gerður Eva Sigurðardóttir Wiium, Ellý Hákonardóttir, Svava Marín Sindradóttir og Eva Lilja Óskarsdóttir.

Við óskum öllum útskriftarnemum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með áfangann.

Fleiri myndir frá brautskráningunni verða settar inn í næstu viku.