Bókagjöf

Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur og ljóðskáld færði Kvennaskólanum nýlega höfðinglega gjöf; 50 eintök af ljóðabókinni “Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett”.

Bókin kom út 2014 og hlaut hún Fjöruverðlaunin 2015 auk þess sem hún var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Nemendur og starfsfólk Kvennaskólans geta sótt sér eintak á bókasafn skólans meðan birgðir endast.