Bleikur Kvennó

 

Föstudaginn 15. október tóku nemendur og starfsfólk Kvennaskólans að sjálfsögðu þátt í Bleika deginum. Það var frábært að sjá hve margir voru með, meira segja þeir sem höfðu dansað fram eftir á Kvennóballinu kvöldið áður. Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár. Á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélagið landsmenn til að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu.