- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Aðfaranótt miðvikudagsins 8. október hélt 25 manna hópur þýskunemenda í Berlínaráfanga sem kenndur er við skólann ásamt kennara áfangans, Björgu Helgu Sigurðardóttur og aðstoðarmanni, til Berlínar í náms- og menningarferð. Nemendur höfðu fyrir ferðina lært um sögu og menningu borgarinnar, unnið kynningar um hverfi hennar og þekktustu staði og rifjað upp orðaforða til að geta bjargað sér sem best í heimsborginni.
Hópurinn gisti við Alexanderplatz, í hjarta gömlu Austur-Berlínar. Farið var í bæði göngu- og rútuferð með íslenskum leiðsögumanni sem býr í Berlín auk þess sem kennari og aðstoðarmaður fóru með nemendur í styttri ferðir. Í þessum ferðum voru skoðaðir margir merkir staðir. Má þar nefna Brandenborgarhliðið, Ólympíuleikvanginn, dómkirkjuna, minnismerkið um helförina, Potsdamer-torgið, East Side Gallery, Treptower-garðinn, Bebelplatz og Humboldt-háskólann við breiðgötuna Unter den Linden. Auk þess var minningarstaður um Berlínarmúrinn (Gedenkstätte Berliner Mauer) heimsóttur þar sem nemendur fengu leiðsögn. Einnig fór hópurinn í heimsókn í íslenska sendiráðið í Berlín og fékk kynningu á starfsemi þess og skoðunarferð um húsnæðið. Nemendur skoðuðu jafnframt merkan stað að eigin vali og fóru þá á ýmis söfn, upp í sjónvarpsturninn og/eða í dýragarðinn og skrifuðu skýrslu á þýsku um heimsóknina eftir að heim var komið. Nokkrir úr hópnum nýttu tækifærið og fóru á æsispennandi handboltaleik í Meistaradeildinni. Margir notuðu einnig tækifærið og versluðu á Ku‘damm, frægustu verslunargötunni í vesturhluta Berlínar. Síðasta kvöldið fór allur hópurinn saman út að borða á veitingastað í nágrenni gistiheimilisins.
Komið var heim síðdegis laugardaginn 11. október eftir mjög vel heppnaða ferð. Eftir að heim var komið hafa nemendur unnið ýmiss konar verkefni í tengslum við ferðina, s.s. skrifað ferðasögu, frásögn um heimsókn á veitingastað, klippt til og sett texta á myndbönd sem tekin voru í Berlín og undirbúið sig fyrir munnlegt próf þar sem segja á frá einum degi og lýsa mynd sem tekin var í ferðinni. Framkoma nemenda var til fyrirmyndar og voru þeir sjálfum sér og skólanum til sóma.