Ása Dagrún hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í Ólympíukeppninni

Alþjóðlega ólympíukeppnin í efnafræði 2026 var haldin í Tashkent, höfuðborg Úsbekistan, fyrr í mánuðinum. Ása Dagrún Geirsdóttir, sem útskrifaðist úr Kvennó í vor, var í liði Íslands og hlaut hún viðurkenningu fyrir góðan árangur. Í liðinu voru einnig Daði Þór Friðriksson úr Flensborg, sem fékk bronsverðlaun, Jón Oddur Högnason úr MR og Fannar Smári Jóhannsson úr MH. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur. Þess má geta að þetta er besti árangur Íslands í keppninni síðan 2006.