Afmælisráðstefna Grænfánans

 

Kvennaskólinn er þátttakandi í Grænfána verkefni Landverndar. Næstkomandi föstudag, 4. febrúar, verður rafræn ráðstefna haldin í tilefni 20 ára afmælis verkefnisins. Ráðstefnan á erindi til allra sem hafa áhuga á menntun til sjálfbærni og verður lögð rík áhersla á getu til aðgerða og valdeflingu nemenda í tengslum við loftslags- og umhverfismál. Endilega skráið ykkur á viðburðinn og takið þátt í gegnum vefsíðu verkefnisins.

Dagskrá
09:00 Andrea Anna Guðjónsdóttir - kynnir dagsins
09:05 - 09:15 Ráðstefna sett af forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessyni
09:15 - 09:30 Örfræðsla í menntun til sjálfbærni - Guðrún Schmidt sérfræðingur í menntun til sjálfbærni
09:30 – 10:00 Tinna Hallgríms - formaður Ungra umhverfissinna
10:00 – 10:10 Mennta- og barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason - mikilvægi menntunar til sjálfbærni - valdefling og raddir nemenda
10:10 – 10:20 Jökull Jónsson – tónlistaratriði

10:20 – 10:35 Uppbrot
10:35 - 10:40 Kaffipása

10:40 – 11:00 Að elska náttúruna - Anney Ágústsdóttir frá leikskólanum Akraseli segir frá vel heppnuðu grænfánastarfi og heimsmarkmiðum
11:00 - 11:20 Grænfáninn sem áfangi í framhaldsskólum - Katrín Magnúsdóttir og nemendur hennar úr MS segja frá
11:20 - 11:25 Nemendur á leikskólanum Maríuborg flytja umhverfislag leikskólans
11:25 - 11:30 Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra
11:30 - 11:50 Grænfáninn í 20 ár - Sagan - hvað hefur gerst á þessum 20 árum?

Heiðursverðlaun veitt
Opnun nýrrar verkefnakistu
11:50 - 12:05 Vigdís Hafliða uppistandari
12:05 - 12:15 Kynning á rafrænum vinnustofum sem verða reglulega fram að sumri með mismunandi áherslum. Opnar öllum grænfánaskólum