Skrifstofa skólans

Aðalskrifstofa skólans er á 2. hæð aðalbyggingarinnar við Fríkirkjuveg 9. Auk venjulegrar skrifstofuþjónustu eru þar seld ljósrituð hefti, leigðir skápar til nemenda, tekið við tilkynningum um fjarvistir  nemenda og margt fleira. 

Afgreiðsla skrifstofu skólans er venjulega opin virka daga frá kl. 8:00 - 11.30 og 12:00 - 15:30 nema á föstudögum lokar kl. 14:30. Á prófatíma færist hádegislokun aftur um hálfa klukkustund, þ.e. lokað kl. 12:00 - 12:30.

Skrifstofustjóri er Guðný Rún Sigurðardóttir gudnyrun[hjá]kvenno.is. Guðný Rún er einnig fjármálastjóri skólans.

Fulltrúi á skrifstofu er Auður Aðalsteinsdóttir audurad[hjá]kvenno.is