Vettvangsnám kennaranema

Samstarf Kvennaskólans og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

Kvennaskólinn í Reykjavík er einn af samstarfsskólum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um menntun framhaldsskólakennara. Samstarfsskólar sjá um vettvangsnám kennaranema sem er 10 ECTS einingar og tekur hver skóli árlega á móti 8 - 15 kennaranemum sem eru að undirbúa sig undir kennslu í mismunandi námsgreinum. Vettvangsnámið nær yfir eitt skólaár. Kennaranemar sækja vikulega fundi og kynnast fjölbreyttum þáttum í starfsemi skólans. Þannig fá þeir tækifæri til að fylgjast með kennslustundum, mæta á kennarafundi, aðstoða við kennslu og að lokum fá þeir æfingu í að kenna sjálfir undir handleiðslu leiðsagnakennara sem eru starfandi kennarar við Kvennaskólann. Kennaranemarnir gera verkefni í háskólanum sem eru tengd með markvissum hætti skólastarfi Kvennó. Samstarfið er því dýrmætt fyrir kennaranemana, starfsþróun leiðsagnakennara Kvennaskólans og Menntavísindasvið. Sérstakur verkefnisstjóri hefur umsjón með kennaranemum og er í samstarfi við Menntavísindasvið og verkefnisstjóra í öðrum framhaldsskólum sem sjá um vettvangsnámið í sínum skólum.

Sigríður María Tómasdóttir sér um verkefnastjórn kennaranema.