Einingafjöldi: 5
							Þrep: 1
									Forkröfur: Engar					
	
		Farið er yfir helstu tónlistarstefnur og strauma í gegnum  20. öld. Athuguð eru tengsl við hópamyndanir, þjóðfélagsbreytingar, hnattvæðingu og hverskyns andóf. Nemendur stjórna að hluta hvaða tónlistarstefnum verður fjallað sérstaklega um. Nemendur vinna margs konar verkefni og flytja í kennslustundum. Notuð verða myndbönd og tónlist og byggist námið mikið á hlustun í kennslustundum, heima og með stuttum fyrirlestrum kennara og nemenda.
Engin krafa er gerð um að nemendur hafi mikla þekkingu á tónlist en áhugi á allskyns tónlist er æskileg. 
	
			
			Þekkingarviðmið
			Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
			
									-  áhrifamestu tónlistarstefnum 20. aldar  
 
									-  helstu áhrifavöldum í þróun tónlistar s.s. hljómsveitir, tónlistarfólk og tækninýjungar 
 
									-  mikilvægustu félagslegu breytingum 20. aldar og tengingum þeirra við tónlist
 
									-  helstu hugtökum sem tengjast ólíkum tónlistarstefnum s.s. bjögun, bergmál, auto-tune, sömpl, trommuheilar o.s.frv. 
 
									-  hvernig íslensk tónlistarmenning breyttist í takt við erlenda strauma
 
							
		 
	
			
			Leikniviðmið
			Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
			
									-  greina á milli áhrifamestu tónlistarstefna 20. aldar  
 
									-  lesa og skilja áhrif ólíkra tónlistarstefna í samfélagi 20. aldar 
 
									-  greina stöðu tónlistar innan samfélagsins og þau áhrif sem tónlist gat haft á samfélagið 
 
									-  gera grein fyrir einkennum og þróun ólíkra tónlistarstefna 
 
									-  setja fram niðurstöður sínar bæði munnlega og skriflega  
 
							
		 
	
			
			Hæfniviðmið
			Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
			
											- gera grein fyrir samspili tónlistar, félagslegra breytinga og myndun menningarkima
 
															- tjá sig skipulega og gagnrýnið um tónlist og tónlistarstefnur
 
															- geta lagt mat á heimildir og upplýsingar
 
															- geti beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á eigin námi og unnið í samvinnu við aðra
 
										
		 
	
	Nánari upplýsingar á námskrá.is