Einingafjöldi: 5
							Þrep: 1
									Forkröfur: Engar					
	
		Í áfanganum verða skoðaðar kvikmyndir á mismunandi tungumálum út frá fyrirfram gefnu þema. Skoðað er hvernig menningarmunur birtist í kvikmyndum frá ólíkum menningarsvæðum og er athyglinni m.a. beint að staðalmyndum, klisjum og tabúum. 	
			
			Þekkingarviðmið
			Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
			
									- menningarmun ýmissa landa út frá tilteknu þema í kvikmyndum
- mismunandi túlkunarleiðum þjóða til að koma á framfæri ákveðnum boðskap í kvikmyndum
 
	
			
			Leikniviðmið
			Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
			
									- túlka og gagnrýna kvikmyndir út frá tilteknu þema
- hlusta á og öðlast frekari skilning á ólíkum tungumálum með tiltekið þema í forgrunni
 
	
			
			Hæfniviðmið
			Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
			
											- bera saman hvernig tiltekið þema birtist í kvikmyndum frá ýmsum löndum
- átta sig á ólíku tungutaki ýmissa þjóða þar sem tiltekið þema er haft til hliðsjónar
- lesa í ólíka menningu þjóða hvað varðar tiltekið viðfangsefni
 
	
	Nánari upplýsingar á námskrá.is