Tjarnardagur

Nemendadagur, ekki kennsla þennan dag. 
Bekkir gera eitthvað skemmtilegt saman og um kvöldið verður Rymja söngvakeppni Kvennaskólans. Söngvakeppninni verður streymt.

Hér eru upplýsingar frá nemendafélagi skólans: 
Miðvikudagurinn 17. febrúar: Bekkjarfulltrúar skipuleggja daginn í samráði við bekkinn og nemendur gera sér glaðan dag saman. Skólinn getur útvegað stofu fyrir þá bekki sem ekki geta hist utan skóla. Um kvöldið fer svo söngvakeppnin Rymja fram í gegnum streymi sem verður aðgengilegt fyrir nemendur, foreldra og kennara.