Nýnemaferð hjá 1FF/1FÞ/1ND/1NF/1NÞ


Nýnemaferð á Akranes. Það er engin kennsla hjá bekknum daginn sem hann fer í ferðina. Nemendur eiga að vera mættir í Kvennaskólann kl. 9:15 og lagt verður af stað kl. 9:30. Rúturnar verða líklega við Lækjargötuna norðan megin við Miðbæjarskólann (í átt að MR). Dagskrá ferðarinnar miðar að því að hrista nemendur saman og hafa gaman. Stjórn nemendafélagsins Keðjunnar býður upp á grillaðar pylsur í hádeginu. Við reiknum með að vera komin tilbaka fyrir kl. 16:00. Dagskrá nýnemaferðarinnar er utan dyra og því mikilvægt að klæða sig eftir veðri. Hér sjáið þið hvaða dag hver bekkur fer:

Þriðjudagur 5. september: 1FF/1FÞ/1ND/1NF/1NÞ

Miðvikudagur 6. september: 1SB/1FA/1FB/1NA/1NB