- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Nýnemaferð fimmtudaginn 3. september – upplýsingar
Fimmtudaginn 3. september verður farið í nýnemaferð á Akranes. Það er engin kennsla hjá nýnemum þann daginn. Nemendur eiga að vera mættir í Kvennaskólann kl. 9:15 og lagt verður af stað kl. 9:30. Rúturnar verða staðsettar á rútustæðum við Hörpu.
Dagskrá ferðarinnar miðar að því að hrista nemendur saman og hafa gaman. Boðið verður upp á hressingu í hádeginu. Við reiknum með að leggja af stað til baka frá Akranesi kl. 14:00.
Dagskrá nýnemaferðarinnar er utan dyra og því mikilvægt að klæða sig eftir veðri. Gott er að hafa meðferðis vatnsflösku og eitthvað nesti.