Nýnemadagur og fræðsludagur

Móttaka nýnema í 1. bekk:
Dagskrá fyrir nýnema á 1. ári verður þriðjudaginn 18. ágúst. Skólasetning hefst kl. 9:00 í Uppsölum, húsnæði skólans við Þingholtsstræti 37. Dagurinn hefst með stuttu ávarpi og kynningu frá skólameistara og svo hitta nemendur umsjónarkennara og bekkjarfélaga. Að því loknu munu fulltrúar úr nemendafélaginu ganga með nýnemum um húsnæði skólans og stjórna hópefli. Gert er ráð fyrir að dagskrá ljúki um hádegi. Nýnemar þurfa ekki að mæta með nein skólagögn þennan dag.

Fræðsludagur:
Fræðsludagskrá í Uppsölum kl. 13:00 fyrir nemendur sem kosnir hafa verið í embætti, nefndir og félög á vegum Keðjunnar síðastliðið vor.