ENSK3LF05 - Frá bók í bíó

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: ENSK3AC05
Í þessum enskuáfanga er fjallað um hvernig skáldverk eru aðlöguð að kvikmyndaforminu. Farið verður yfir hvernig hugmyndir og sköpunarferli verða til og þróast, hvað gott sé að hafa í huga þegar aðlaga á skáldverk að kvikmynd og hvað beri að varast í þessum efnum. Skáldverkin verða krufin og greind ein og sér og síðan með tilliti til og í samanburði við kvikmyndaaðlaganirnar. Nemendur þurfa að rýna grannt í kvikmyndir, túlka þær og skilja út frá frásagnarhætti og sjónrænum þáttum. Lítillega verður farið yfir hugtök og kenningar í kvikmyndafræði í þessum samhengi en áherslan er meiri á bókmenntalegan skilning og túlkun. Kröfur áfangans samsvara hæfniþrepi C1 í Evrópska tungumálarammanum (CEFRL).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu einkennum og stíl skáldverkanna
  • helstu hugtökum kvikmyndafræði
  • hvað hafa ber í huga við kvikmyndaaðlaganir skáldsagna og leikrita

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa og skilja samtíma skáldsögur og 16. aldar leikrit á ensku
  • fjalla um og greina skáldsögur og leikrit í umræðum og kynningum
  • horfa á, bera saman og greina kvikmyndir út frá skáldsögum og leikritum
  • skrifa formlega og óformlega texta á ensku um viðfangsefnin
  • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við efni áfangans

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • dýpka lesskilning sinn á ensku
  • mynda sér skoðanir og geta rökstutt þær í umræðum, kynningum og ritunum
  • miðla á skapandi hátt hugmyndum og skoðunum á bókmenntum og kvikmyndum
  • geta borið saman og vegið og metið ólíkar kvikmyndaútfærslur á skáldverkum
Nánari upplýsingar á námskrá.is