STÆR3VF05 - Fjármálastærðfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÆR2FH05
Diffrun falla, lograjöfnur, vísisföll og inngangur að heildun.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • diffrun og diffrun falla
  • logrum og vísisföllum
  • grunnatriðum heildunar
  • kostnaðarföllum, tekjuföllum, jaðarkostnaði og jaðartekjum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • diffra algengustu föll
  • diffra margfeldi falla, kvóta falla og notað keðjuregluna
  • leysa lograjöfnur og vandamál þar sem veldi er ekki þekkt
  • heilda einföld föll með ákveðinni heildun
  • vinna með tengsl örsmæðareiknings og hagfræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta diffrað algengustu föll
  • geta diffrað margfeldi falla, kvóta falla og vita hvenær á að nota keðjuregluna
  • leysa lograjöfnur og vandamál þar sem veldi er ekki þekkt
  • skilja tengsl örsmæðareiknings og hagfræði
  • skilja tengsl flatarmáls og heildunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is